Vegna „vöntunar“ á velgengi ákvað Jagúar liðið að endurhanna bíl sinn í formula 1. Ekki er vitað með vissu hversvegna eða afhverju V&S takast á við neðangreint verkefni en sem betur fer er ekki þörf á vindgöngum, nóg er rokið.
Það er opinbert! Tilraun no. 2 á 4 árum. Raggi og 250 eiga í erfiðleikum saman. Karlinn er alinn upp á 500 frá 1983 og seinni tilraun til að verða 250 ökumaður endaði síðasta mánudag. 5 sek.munur að jafnaði í braut þar sem power er ekki atriði ( Grindavík ) gerði útslagið. 500 skal það vera. Þetta þýðir að á miðvikudag var búið að safna því sem þurfti. KX500 skaffar vélina. KX250 stell og græjur + Marzocchi race framdempar og eftir helgi verður einn af örfáum 500vél/250stell Kawar í heiminum ready. Eina svona græjan sem við vitum um er hjólið sem Ástralinn Ferguson leiddi GPið þar langt fram eftir keppni, á undan Everts, Smets o/co. Ameríkanar hafa smíðað tvö 500 hjól með 250 afturstelli og sérsmíðuðum tank. Kalla það KX500-F. Hugmyndin þar var að minnka hjólið um miðjuna og auðvelda þungaflutning fram og aftur. Heimurinn er svo smár í þessum geira að Dave sem smíðaði USA hjólin ( Vinnur hjá ProCircuit ) spurði Steina hvort hann þekkti Ferguson! Þetta verður spennó. Raggi og VH&S ætla ekkert að gefa titilinn í ár þó síðasta ár hafi horfið í meiðsli.