Ósk hefur borist vefnum um að komið verði á framfæri beiðni til hjólamanna að aka ekki í gegnum Svínaskarð og Svínadal næstu vikur. Tugir hesta eru þar á beit og tryllast þeir þegar keyrt er í gegnum dalinn. Bændur með hesta á beit eru orðnir snælduvitlausir þar sem hestarnir verða með öllu óviðráðanlegir og fást ekki á beit fyrr en löngu síðar. Síðan endurtekur leikurinn sig þegar næsti hjólamaður kemur.