Nú er ekki spurning. Ísinn verður kominn fyrir helgi. Veðurstofan spáir yfir 5 stiga frosti framyfir helgi. Hvaleyrarvatn var orðið svo gott sem mannhelt í gærkveldi og má því gera ráð fyrir að vatnið verði orðið vel frosið á laugardaginn. Allt bendir því til þess að VÍH muni geta haldið fyrstu Íslandsmótskeppnina í íscrossi á Hvaleyrarvatni á þessu ári eftir tvær helgar. Nánari upplýsingar um skráningu og keppnisfyrirkomulag verða birt um helgina.