Aðfaranótt sunnudags (í gærnótt), var brotist inn í bílskúrinn hjá Torfa Hjálmarssyni. Tóku þeir Suzuki RM80 árgerð 2000 sem er eign Freys Torfassonar (12ára) og létu öll önnur hjól og fylgihluti vera. Það eru til 2 RM80 2000árg. hjól á landinu og lítur þetta hjól mjög vel út. Nýtt límmiðakitt, nýtt afturbretti, ný tannhjól að framan og aftan. Hjólið er (var) hinsvegar keðjulaust og þurfa þjófarnir því að byrja á að redda sér keðju. Menn eru beðnir um að vera einstaklega vel vakandi og tilkynna lögreglu eða Torfa í síma 552-1550 eða 899-6383.