…eða svo segir biblían. Ingvar smurkóngur gekk hinsvegar á Hvaleyrarvatni um níuleytið í kvöld. Sjö metrum frá fjöruborði brakaði og dúaði ísinn vel. Þorði hann ekki lengra en henti stórum steinum eins langt og hægt var. Enginn steinanna fór í gegn. Það er þriðjudagur í dag og með hóflegum skammti af hafnfirskri bjartsýni verður hægt að hjóla á ísnum um næstu helgi.