Þær eru ekki margar stúlkurnar sem taka þátt í þessari íþrótt og því mikil hvatning fyrir kynsystur Heiðu að sjá hana taka þessu af alvöru. Heiða byrjaði að hjóla snemma í vor og hefur náð undraverðum árangri á ekki lengri tíma.
Sjálf segist hún vera orðin gjörsamlega „hooked“ og þetta vera rosalega gaman. Hún sendi okkur tvær myndir af sjálfri sér, öðrum til hvatningar.