Vefurinn hefur verið að fá fréttir af því að Karl Gunnlaugsson hafi verið að taka myndir við árbakkann ásamt nokkrum mömmum, meðan á keppninni í Baldursdeild stóð. Aðspurður sagði hann mæðrunum að ef sonur sinn lendir í einhverjum vandræðum þá verður hann að bjarga sér sjálfur. Hann væri sko ekki mættur þarna til að hjálpa honum.
Fréttir hafa síðan hermt að stuttu síðar hafi Gunnlaugur Karlsson komið á fleygi ferð og flogið á hausinn ofan í ánni. Áður en menn vissu af þá flaug myndavélin upp í loft, einhver mamman greip vélina og Karl fórnaði sér beint út í á. Í öllum æsingnum féll hann víst flatur, á bólakaf.
Vefurinn náði samband við Karl Gunnlaugsson en hann var staddur á öðru hundraðinu á M1 í Bretlandi. Jú rétt, hann lét víst einhver orð falla um að hann ætlaði ekki að fórna sér. Jú rétt, hann stökk af stað og hann datt á hnén og varð blautur upp á brjóst.
Vefurinn hafði einnig frétt af því að einhver mamman hafi tekið myndavélina hans og reynt að taka myndir af þessu. Staðfesti Karl að upptakan hefði tekist að hluta.