Í kvöld kl: 23:55 er þátturinn Vélhjólasport á dagskrá Sjónvarpsins. Sýnt verður frá fyrstu umferð Íslandsmótsins í Moto Cross sem fram fór á glæsilegri braut við Ólafsvík á laugardaginn.
Sýnt verður lítillega frá unglingaflokki en meistaraflokki og B flokki gerð góð skil. Þátturinn er 20 mínútur af adrenalíni og spennu en gesta þulur er Ingi McGrath of the North.
Vélhjólasport er endursýnt á laugardaginn eftir tímatökur í Formula 1 kappakstrinum.