{mosimage}Um Páskana verður haldinn fyrsta keppni ársins 2005.
Laugardaginn 26. MARS. verður haldinn Enduro-X keppni í landi Höfðabrekku við VÍK í Mýrdal.
Á Höfðabrekku er rekið glæsilegt hótel með gistingu fyrir 120 manns. Keppnisbrautin verður
í Moto-Cross braut sem er rétt við hótelið. Moto-Cross brautin verður notuð ásamt 3-5 km í
sandinum og fjörunni þar fyrir neðan. Beach Race "Enduro + MX" = Enduro-X
Öllum er heimil þáttaka og mun skráning standa til mánudagskvölds kl: 23:00 21.apríl.
Vinsamlegast sendið skráningu á kg@ktm.is með upplýsingum um nafn, kennitölu, hjól,
keppnisnúmer og í hvaða flokk á að keppa í A – B.
Keppnisgjald er 3.000,- fyrir B flokk en 4.000,- fyrir A flokk.
Hótel Höfðabrekka (www.hofdabrekka.is) býður tilboð á gistingu um Páskana fyrir hjólamenn
á 5.200,- nóttina í 2 manna herbergi m/sturtu og morgunmatur er innifalinn. Á laugardagskvöld
verður verðlaunaafhending og býður hótelið tilboð á súpu og grillveislu á aðeins 1.700,- á mann.
Moto-Cross brautinn verður opin á Skírdag og Föstudaginn langa fyrir þá sem vilja mæta fyrr
og æfa sig. Á laugardeginum verður svo bætt inn 3-5 km kafla fyrir keppnina.
Heyrst hefur að mestur áhugi sé fyrir að mæta í hádeginu á Föstudaginn langa og hjóla fram á kvöld,
keppa á laugardeginum og mæta í grillið og verðlaunaafhendinguna um kvöldið.
Fyrir þá sem eru óþreyttir þá er brautin opin á Páskadag.
DAGSKRÁ | ||||
Páskamót 2005 / Enduro-X keppnisdagskrá: | ||||
Laugardaginn 26.Mars. Höfðabrekku v/ VÍK | ||||
Skoðun: |
Hefst: |
Líkur: |
||
B flokkur: |
10:00 |
10:30 |
||
|
10:30 |
11:00 |
||
Flokkur: |
Röðun á ráslínu: |
Keppni hefst: |
Keppni líkur: |
Aksturstími: |
B 1 |
12:00 |
12:10 |
12:45 |
35 mín. |
A 1 |
12:50 |
13:00 |
13:50 |
50 mín. |
|
|
|
|
|
B 2 |
14:00 |
14:10 |
14:45 |
35 mín. |
A 2 |
14:50 |
15:00 |
15:50 |
50 mín. |
|
|
|
|
|
Grill: |
19:00 |
Höfðabrekku |
|
|
Verðlaun: |
20:00 |
Höfðabrekku |
|
|
Keppnin verður keyrð eftir Enduro keppnisreglum MSÍ / VÍK. | ||||
Ræsing er hópræsing eins og í Íslandsmótinu í Enduro. | ||||
A flokkur er opinn flokkur og veitt eru verðlaun fyrir 1.2.og 3. sæti. | ||||
B flokkur er opinn flokkur og veitt eru verðlaun fyrir 1.2.og 3. sæti. | ||||
Aukaverðlaun eru fyrir fyrsta 85 cc keppandann í B flokk. | ||||
Aukaverðlaun eru fyrir fyrsta keppandann í kvennaflokki. | ||||
Aukaverðlaun eru fyrir hraðasta hring dagsins í A og B flokki. | ||||
Keppnisstjórn áskilur sér rétt til að færa menn á milli flokki. | ||||
ATH. Þetta er ekki heimsmeistarakeppnin eða Íslandsmótið. | ||||
Þetta er létt og skemmtileg upphitun eftir veturinn, brosa og hafa gaman af. |
Allar nánari upplýsingar:
Karl Gunnlaugsson
S: 586-2800 & 893-2098
kg@ktm.is