Hinn ungi og efnilegi ökumaður Kári Jónsson tók forystu í fyrri hluta keppninnar og leiddi mótið. Þessi 17 ára ökumaður náði þó ekki að halda Einari Sverri Sigurðarsyni nógu lengi fyrir aftan sig. Einar, sem er núverandi Íslandsmeistari í þolakstri, komst komst fram úr Kára og kláraði fyrri hlutann í fyrsta sæti. Í seinni hluta keppninnar tók Gylfi Freyr ………
_____________________________________________________________________
Úrslitin og tímarnir eru hér
_____________________________________________________________________
Fréttatilkynning VÍK – 15.05.2005
1. umferð Íslandsmótsins í þolakstri
_____________________________________________________________________
Viðburður: 1. umferð Íslandsmótsins í þolakstri á torfæruhjólum
Staður & Stund: Austan við Hellu, laugardaginn 14.05.2005
Skipuleggjendur: Vélhjólaíþróttaklúbburinn (VÍK)
Þátttakendur: Meistaradeild: 32 keppendur, Baldursdeild: 60 keppendur
Veður: Léttskýjað, gola, 10°C
Braut: Sandur, sandbörð, sandbrekkur, mýri, lækir, leðja
_____________________________________________________________________
Úrslit Meistaradeild:
1. Einar Sverrir Sigurðarson, KTM
2. Valdimar Þórðarson, Yamaha
3. Kári Jónsson, TM
Um keppnina:
Hinn ungi og efnilegi ökumaður Kári Jónsson tók forystu í fyrri hluta keppninnar og leiddi mótið. Þessi 17 ára ökumaður náði þó ekki að halda Einari Sverri Sigurðarsyni nógu lengi fyrir aftan sig. Einar, sem er núverandi Íslandsmeistari í þolakstri, komst fram úr Kára og kláraði fyrri hlutann í fyrsta sæti.
Í seinni hluta keppninnar tók Gylfi Freyr Guðmundsson forystu og virtist ætla að skilja andstæðinga sína eftir. Gylfi keyrði þó einnig fram úr sjálfum sér, því hann þyrlaðist á hausinn niður snarbratta sandbrekku og datt úr keppni. Einar tók þá forystu með Valdimar Þórðarson rétt á eftir sér og þá Kára og Gunnlaug Björnsson að slást um 3. sætið. Einar hélt fyrsta sætinu í seinni hlutanum, Valdimar tók annað sætið og þrátt fyrir fljúgandi ferð á Gunnlaugi flugmanni, náði hann ekki framúr Kára.
Keppnin endaði þannig að Einar sigraði, Valdimar varð í öðru sæti og Kári í því þriðja.
Um brautina:
Keppnin fór fram austan við Hellu í sandgryfjum og mýrarsvaði sem þar er. Brautin var mikið lögð í gljúpum sandi en djúp mýrin reyndist mönnum mjög erfið. Keppendur þurftu einnig að keyra yfir árfarvegi og læki.
{mosimage}
Hjálmar Jónsson fleytir Hondunni yfir lækinn
{mosimage}
Páll Melsteð, Yamaha, á bólakafi í mýrinni
{mosimage}
Menn áttu í mesta basli með mýrina
{mosimage}
Menn beittu mismunandi tækni til að yfirstíga mýrina. Supermann-tæknin er mjög stílhrein en bar lítinn árangur
{mosimage}
Jóhann Arnarson, Kawasaki, sýndi tilþrif í keppninni
{mosimage}
Einar Sverrir Sigurðarson, margfaldur Íslandsmeistari stóð uppi sem sigurvegari eftir þéttan og öruggan akstur.
Frekari upplýsingar:
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um mótið, fá fleiri myndir frá mótinu, nánari upplýsingar um keppendur, keppnishald sumarsins ofl. hjá neðangreindum:
Bjarni Bærings
fjölmiðlafulltrúi VÍK,
Sími: 898-9090
Netfang: bb@medis.is