Um helgina var haldin á Selfossi í miklu votveðri Keppni hinna bestu í motocrossi, og voru mættir allir helstu kappar landsins. Það mættu 15 keppendur af 25 sem boðið hafði verið og hefur veðrið spilað stóran þátt í að menn hafi ekki mætt, og líka það að þessi keppni skipti engu máli í stigagjöf til Íslandsmeistara. Breyting var gerð á keppnisfyrirkomulagi í kjölfarið þar sem hópurinn var ekki stærri og var ákveðið að sleppa riðlinum
"síðasti séns" og gefa frekar stig fyrir sæti eins og gert er í Íslansmeistaramótinu og fengu menn stig fyrir fyrri umferð og úrslitin en samt sem áður voru keyrðir riðlar fyrir 24 ára og yngri og síðan 25 ára og eldri.
Okkur urðu á þau mistök í hita leiksins að láta Brent Brush ekki vita af breytingunni á sínu móðurmáli og hörmum við þau mistök og tökum þau öll á okkur sem stóðum fyrir keppninni og er þetta hlutur sem gerist ekki aftur, 200 manns voru mættir á keppnina og erum við mjög sáttir við það í þessu veðri. Úrslitin í keppninni urðu þau að Einar Sigurðarson hafnaði í fyrsta sæti, Gylfi Freyr hafnaði í öðru sæti og svo Brent Brush í því þriðja.
Við hjá Motocrossklúbbi Árborgar viljum þakka öllum keppendum og áhorfendum fyrir keppnina og að láta sjá sig í þessum úrhellir og þá fær Hjálmar H. Jónsson frá Egilstöðum hetju kveðjur frá okkur fyrir að keyra þaðan í keppnina, við vonum síðan bara til að sjá sem flesta að ári því þessi keppni er komin til að vera.
Hér eru úrslitin og tímarnir
Kveðja Óli Rúnar MÁ