Á síðasta aðalfundi var ákveðið að koma upp félagsheimili á KKA svæðinu. Vitað er að þetta mun verða á kostnað brautarinar, það mun vitanlega hægja á framkvæmdum í brautinni á meðan starfskröftum og fé er eytt í að koma upp húsnæði á svæðinu en það er þess virði. Búið er að undirbúa komu hússins, steypa grunn, smíða gólf og margt annað sem þessu fylgir. Húsið sjálft mun verða flutt upp á svæði á morgun. Um helgina var gámur fluttur á svæðið og var hann staðsettur austan við hússtæðið. Rotþró var grafin og lögnum komið fyrir. Á næstunni verða vatns- og raflagnir lagðar inn á svæðið.
Tekkið af síðu KKA.