Vélhjóla og vélsleðaíþróttanefnd ÍSÍ hefur fengið aðild að UEM – Evrópusamtökum Vélhjólamanna. (Nánari upplýsingar: http://www.uem-online.org ). Nú er því lokið því tímabili þar sem Íslenskir keppendur þurfa að skrá sig í erlenda klúbba til þess að öðlast keppnisrétt erlendis. Frá og með deginum í dag munum við geta boðið keppendum í félögum sem eiga aðild að ÍSÍ alþjóðleg keppnisskýrteini. Nánari upplýsingar veitir Aron Reynisson, aronreyn@simnet.is . Við óskum öllum Hjóla og sleðamönnum til hamingju.
Með kveðju, Vélhjóla og vélsleðaíþróttanefnd ÍSÍ