Einn af betri ökumönnum sem komið hafa fram í mörg ár Ben Townley, 21 árs frá Nýja Sjálandi slasaði sig á hné við æfingar á Florida í fyrradag. Það er því ljóst að hann mun ekki keppa í Supercrossinu (East Series) í vetur fyrir Team kawasaki. Hann mun gangast undir aðgerð fljótlega og taka stefnuna á AMA Motocross í sumar sem byrjar í maí.