Vélhjóla og vélsleðaíþróttanefnd hefur kosið Ragnar Inga Stefánsson vélhjólaíþróttamann ársins. Ragnar varð íslandsmeistari í Motocross 2005 í 9 skipti, 40 ára gamall. Hann hefur keppt í Motocross síðan 1981 og á því að baki yfir 24 ára feril í íþróttinni. Hann var því byrjaður að keppa áður en margir af hans helstu
andstæðingum voru fæddir. Þetta er einstakur árangur í íþrótt sem er talin ein sú erfiðasta sem hægt er að leggja stund á. Ragnar hefur lagt á sig mjög mikla vinnu til þess að ná þessum árangri og bjó meðal annars í Svíþjóð á árunum 1990-2000 til þess að geta æft og keppt við betri aðstæður. Eftirfarandi er listi yfir Íslandsmeistaratitla hans.
1989 | Ragnar Ingi Stefánsson |
1990 | Ragnar Ingi Stefánsson |
1991 | Ragnar Ingi Stefánsson |
1998 | Ragnar Ingi Stefánsson |
1999 | Ragnar Ingi Stefánsson |
2001 | Ragnar Ingi Stefánsson |
2003 | Ragnar Ingi Stefánsson |
2004 | Ragnar Ingi Stefánsson |
2005 | Ragnar Ingi Stefánsson |
Ragnar tók á móti verðlaunum fyrir titilinn í hófi á vegum ÍSÍ á Grand Hótel í gærkveldi.
Með kveðju
Vélhjóla og vélsleðaíþróttanefnd ÍSÍ.