Ný tegund af Endurokeppnum hefur verið að ryðja sér til rúms undanfarin tvö ár. Þetta eru keppnir þar sem keppendur þurfa að fást við mjög erfiðar þrautir og oft á tíðum þurfa þeir aðstoð áhorfenda til þess að klára. Dæmi um slíkar keppnir eru “Hells gate” og The Tough One” sem báðar hafa verið haldnar á þessu ári og David Knight hefur unnið. Það sem vekur athygli er að þeir keppendur sem standa sig hvað best í þessum erfiðu keppnum eru oft á tíðum fyrrverandi eða jafnvel núverandi Trials keppendur.
Dæmi um einn slíkan er Graham Jarvis. Hann er að keppa í fyrsta skipti í Enduro á þessu ári en er mjög þekktur Trials ökumaður og hefur margoft sigrað í heimsmeistarakeppnum í þeirri grein. Hann varð í öðru sæti í “The Though One” á eftir David Knight og kláraði í fimmta sæti í “Hells gate” af þeim sex keppendum sem náðu að klára. Graham mun einbeita sér að Enduro í ár og keppa fyrir Sherco. Það verður án efa spennandi að fylgjast með kappanum og það verður spennandi að sjá hvort fleiri Trials ökumenn feta í sömu spor og þeir fyrrnefndu.