Nú þegar um 10 tímar eru eftir í skráningu á Endúrókeppnina á Hellu eru 84 keppendur skráðir til leiks. Þetta er með því mesta sem gerst hefur í Íslandsmóti og hugsanlega falla einhver þátttökumet ef heldur fram sem horfir. Veðurspáin er góð, rykbinding á fimmtudag og föstudag og svo auðvitað bongó á laugardag. Endúróguðinn er kominn í stuð…