Nú er stutt í Klausturskeppnina og því mikilvægt að greiða félagsgjöldin snemma. Það tekur smá tíma að útbúa skírteinin og síðan er frí á fimmtudaginn eftir viku svo við viljum hvetja ykkur að endurnýja tímanlega. Upplýsingar um bankanúmer og fleira fyrir AÍH er að finna hér -> http://www.motocross.is/index.php?option=com_content&task=view&id=988&Itemid=1 Við viljum einnig þakka fyrir góða þátttöku á Hellu keppninni. Óskum Hjálmari og öðrum sem slösuðust skjótum bata. Alltaf slæmt þegar slys gerast en þökkum þó fyrir að ekkert alvarlegt slys varð á meðan keppninni stóð. Kv. Stjórn AÍH