Stórsýningin Bílar & Sport verður haldin í Laugardalshöll um helgina. VÍK hefur verið boðinn sýningarbás þar sem við getum komið félaginu og sportinu á framfæri. Sýningin er opin á föstudagskvöld, laugardag og sunnudag. Vegna keppninnar á Ólafsvík hefur reynst erfitt að manna básinn. Því óska ég eftir áhugasömu fólki til að sjá um/starfa við sýninguna og kynna VÍK og málstað okkar. Hafið samband í netfangið bb@medis.is ef þið hafið áhuga. F.h. stjórnar VÍK, Bjarni Bærings