Keppnin verður haldin laugardaginn 16.september í Bolöldubraut (hjá Litlu kaffistofunni) og það er VÍK sem heldur keppnina. Tveir nýjir flokkar verða keyrðir með 125 flokknum en það eru 40+ og 45+.
Í þessa flokkast komast aðeins þeir sem eru fæddir 1966 og fyrr og 1961 og fyrr, en keppendur mega ekki hafa hlotið mjög mörg stig til Íslandsmeistara í MX1 2006. Þannig er gert ráð fyrir öllum eldri Íslandsmeisturum og snillingum sem lagt hafa keppnisgallann nánast á hilluna.
Í MX1 verður tímataka og besti tími fer í riðil 1, annar besti tími riðil 2. 8 fyrstu úr hvorum riðli fara beint áfram í úrslit en restin fær síðasta séns og verða það 6 keppendur sem fara áfram úr honum í úrslitin sem verða keyrð í 20mín + 2 hringi. Keppnisstjórn áskilur sér rétt að breyta dagskrá eftir þátttöku.
Vinningar verða veglegir í boði fjölda fyrirtækja og keppnin verður vel kynnt. Klárum sumarið með stæl á nýju svæði.
Keppnisgjald er greitt með millifærslu á reikning nr. 537-26-501101kt. 480592-2639 og verða greiðendur að setja keppnisnúmer sem tilvísun og senda kvittun á vik@motocross.is
Brautin verður lokuð frá og með föstudeginum 15.09.2006. Opnunartími í brautinni þangað til er frá kl. 14:00 – 22:00 virka daga og 10:00 – 18:00 um helgar. Miðar í brautina
eru til sölu í Litlu kaffistofunni.
Keppnisstjóri: Einar Bjarnasson
Brautarstjóri: Reynir Jónsson
Tímavörður: Einar Smárason
Yfirflaggari: Birgir Már Georgsson
Dagskrá – Bikarmót VÍK – Bolalda – 2006 | |||||
Á ráslínu | Byrjar | Lengd | Öryggistími | ATH | |
Mæting – Skoðun |
10:00 | ||||
Tímataka og upphitun 85 og kvennaflokkur | 10:30 | 10:30 | 15:00 | 05:00 | |
Tímataka og upphitun 125 flokkur, 40+ og 45+ | 10:50 | 10:50 | 20:00 | 05:00 | |
Tímataka og upphitun MX1 | 11:10 | 11:15 | 40:00 | 05:00 | |
Skoðun lokið |
11:15 | ||||
Moto 1: 85 og kvennaflokkur | 11:55 | 12:00 | 10:00 | 08:00 | + 1 hringur |
Moto 1: 125 flokkur, 40+ og 45+ | 12:13 | 12:18 | 15:00 | 08:00 | + 2 hringir |
Moto 2: 85 og kvennaflokkur | 12:36 | 12:41 | 10:00 | 09:00 | + 1 hringur |
Riðill 1: MX1 | 12:55 | 13:00 | 15:00 | 08:00 | + 2 hringir |
Riðill 2: MX1 | 13:18 | 13:23 | 15:00 | 08:00 | + 2 hringir |
Moto 2: 125 flokkur, 40+ og 45+ | 13:41 | 13:46 | 15:00 | 08:00 | + 2 hringir |
Síðasti séns MX1 | 14:04 | 14:09 | 10:00 | 08:00 | + 2 hringir |
Moto 3 125 flokkur, 40+ og 45+ | 14:22 | 14:27 | 15:00 | 08:00 | + 2 hringir |
Úrslit MX1 | 14:45 | 14:50 | 20:00 | + 2 hringir | |
Verðlaunaafhending | 15:30 |