Sérleið 14 sem jafnframt er næstsíðasta leið rallsins liggur frá Tambacounda til Dakar og er dagleiðin að þessu sinni 576 km og þar af eru 225 km á sérleiðum.
Það hefur oft verið sagt í Dakar rallinu að þegar ekið er yfir landamærin inn í Senegal að nú sé þetta búið en það hafa margir slakað of mikið á og dottið út þegar svona lítið er eftir.
Dauðsfall varð í dag er hinn 42 ára gamli frakki Eric Aubijoux YAMAHA sem var að taka þátt í sínu 7 Dakar ralli
dó þegar hann átti ekki nema 15 km eftir í endamark.
Var hann í 18 sæti þegar hann stoppaði og kvartaði yfir miklum verkjum og skömmu síðar leið hann útaf og læknar sem komu á staðinn gátu ekki bjargað honum.
Besti árangur Aubijoux var 2001 en þá endaði hann í 16 sæti.
Brasílíumaðurinn Jean De Azevdo KTM kom fyrstur í mark í dag og má segja að þetta hafi veri smá plástur á sálina hjá honum því hann er búin að berjast við bilanir nánast allt rallið. Þetta er annar sigur hans í Dakar rallinu en hann vann þessa sömu leið 2005.
Cyril Despres KTM sem er nú með forustu eftir að Marc Coma KTM féll úr keppni í gær var ræstur fyrstur af stað í dag en það var greinilegt að það átti ekki að taka neina sénsa og fylgdi hann í humátt eftir Cris Blais KTM sem endaði í 4 sæti og Despres í því 5 rúmum 7 mín á eftir 1 sæti.
David Casteu KTM, átti í miklum vandræðum í dag og leit út á tímabili að hann myndi jafnvel ekki klára leiðina en hann var í vandræðum með bensínkerfið hjá sér.
Vegna mikillar umferðar á leiðinni var ræsingu seinni hlutar leiðarinar frestað um 30 mín og dugði það Casteu til að laga hjólið og leggja af stað á réttum tíma og náði hann að vinna sig hratt upp og endaði daginn í 5 sæti og tapaði ekki nema 5 mín í heildina á Blais sem endaði daginn í 3 sæti.
Lokastaða á leið 14:
1. Jean De Azevedo KTM með tímann 3h37´46 meðalhr.85.6km
2. Jacek Czachor KTM með tímann 2h39´51 +2´05
3. Janis Vinters KTM með tímann 2h42´51 +5´05
4. Cris Blais KTM með tímann 2h42´58 +5´12
5. Cyril Despres KTM með tímann 2h44´49 +7´03
6. David Casteu KTM með tímann 2h48´02 +10´16
Heildarstaðn eftir 14 leiðar:
1. Cyril Despres KTM með heildartímann 51h25´49 meðahr. 113.9km
2. David Casteu KTM með heildartímann 52h01´58 +36´09
3. Cris Blais KTM með heildartímann 52h18´50 +53´01
4. Pal Anders Ullevaleter KTM með heildartímann 53h06´01 +1h40´12
5. Helder Rodrigues YAMAHA með heildartímann 53h58´27 +2h32´38
6. Janis Vinters KTM með heildartímann 54h12´32 +2h46´43
7. Michel Marchini YAMAHA með heildartímann 54h26´39 +3h00´50
8. Thierry Bethys HONDA með heildartímann 54h53´59 3h28´10
9. Jaroslav Katrinak KTM með heildartímann 55h07´23 +3h41´34
10. Jacek Czachor KTM með heildartímann 55h49´50 +4h24´01
Síðasta sérleiðin er ekki nema 16 km svo það eru ekki miklar líkur á að staðan breytist en þetta er ekki búið fyrr en það er búið eins og fræg setning segir.
Kv.
Dakarinn