Motocross.is mun standa fyrir ljósmyndakeppni í allt sumar. Keppt verður í 4 flokkum:
- Krakkaflokkur (myndir af krökkum)
- í keppni
- Á ferð um landið
- Fólk
Veitt verða verðlaun í öllum flokkum en fyrir ljósmynd ársins mun verða veittur glæsilegur farandbikar á árshátíð VÍK í haust.
Keppnin er til 30 sept og verða myndirnar að vera teknar fyrir þann tíma. Einkunnagjöf verður á netinu og svo mun dómnefnd gilda 50% á móti.
Sjá reglur nánar hér fyrir neðan:
- Myndirnar þurfa að vera á digital formi (.jpg)
- Myndirnar þurfa að vera teknar og skilað inn á tímabilinu 1.apríl til og með 30.sept 2007 (EXIF upplýsingar gilda)
- Motocross.is áskilur sér rétt á að nota myndirnar á vefnum.
- Myndir á að senda á vefstjori@motocross.is – eina í einu
- Myndirnar verða birtar á http://motocross.vefalbum.is
- Verðlaun fyrir Ljósmynd ársins verður veglegur farandbikar sem afhentur verður á árshátið VÍK þann 20. október 2007.
- Önnur verðlaun verða auglýst síðar.
- Dómnefnd gildir 50% á móti úrslitum í netkosningu. Staðan á netkosningu gildir 30.sept kl.23.59.
- Keppt er í 4 flokkum:
Krakkaflokkur: myndir af krökkum og þeim sem keppa í unglingaflokkum (16 ára og yngri)
Í keppni: enduro, ísakstur, motocross, speedway, klifur ofl
Á ferð um landið: ferðalög, hálendið, láglendið ofl
Fólk: lífið í pittnum, áhorfendur, stuðningsmenn, mekkar ofl.