Svo skoðun hjóla taki sem stystan tíma – hafið þá endilega allt klárt.
Afhenda ber m.a. útfyllta ÞÁTTTÖKUYFIRLÝSINGU til skoðunarmanna.
Ef gögn eru ekki klár – þá verður ekkert skoðað!
Ef ekkert er skoðað – þá verður heldur ekkert keppt !
Láttu það ekki henda þig !
Skoðunarnefnd
PS. Ein þátttökutilkynning nægir fyrir báða dagana. Taka verður fram öll ökutæki sem nota á.
– – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – –
Eftirfarandi atriði þarf að hafa tilbúin við skoðun:
Hjól (..og varahjól )
(í standi samkv. keppnisreglum – munið að hafa keppnisnúmer límt á hjól )
Hjálmur
(óskaddaður hjálmur)
Skráningarplögg ökutækis
(Sönnun fyrir því að hjól sé skráð og tryggt t.d. skoðunarskírteini og/eða skráningarplötur)
Þátttökuyfirlýsing smellið hér
(prentið út af netinu og mætið með útfyllt og undirritað í skoðun !! )
( YNGRI EN 18 ÁRA: munið undirskrift forráðamanns..!! )
ATH!
Þeir sem ekki eru með öll gögn tilbúin við skoðun fara aftur í röðina..!: