Það verður sjoppa opin í Bolaöldu um helgina og að þessu sinni rennur ágóðinn til yngstu iðkendanna í sportinu. Við viljum því endilega biðja keppendur, starfsmenn og áhorfendur um að kíkja í Púkabúlluna og styrkja gott málefni! Á boðstólnum verða heitar samlokur, nammi, kaffi ofl! Engin þörf á að nesta sig upp fyrir daginn!
Sjálfboðaliðar í búðarkonu/karlastörf verða vel þegnir! Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við Berglindi í síma 8959599. Kveðja, Púkabúllunefndin.