MSÍ sendir 12 keppendur til þáttöku á Nordic MX-Championship 2007 í Uddevalla í Svíþjóð sem fer fram laugardaginn 27. október.
6 keppendur eru skráðir í 85cc flokk, þar á meðal Íslandsmeistarinn Eyþór Reynisson á Honda 150 CRF og Íslandsmeistarinn í 85cc kvennflokk Bryndís Einarsdóttir á KTM 85 SX.
6 keppendur eru einnig skráðir í "OPEN" flokk, þar á meðal Íslandsmeistarinn í meistaraflokk Einar Sigurðarson á KTM 505 SX-F, Íslandsmeistarinn í MX2 Brynjar Gunnarsson á Honda 250 CRF, Íslandsmeistarinn í unglingaflokk Heiðar Grétarsson á Kawasaki 250 KXF og 9 faldi Íslandsmeistarinn .
Ragnar Ingi Stefánsson á KTM 450 SX-F.
Uddevalla Grand Prix brautin í Svíþjóð er ein sögufrægasta Moto-Cross braut Evrópu en þar hefur heimsmeistarakeppnin verið haldin í áratugi. Íslendingunum til aðstoðar í Uddevalla verður heimamaðurinn Martin Dygd sem hefur komið til Íslands nokkrum sinnum til námskeiðahalds síðustu ár. Fulltrúi MSÍ / Mótorhjóla og Snjósleðaíþróttasambands Íslands verður Einar Smárason
MSÍ # | NorCup # | Nafn keppanda: |
85 cc. | ||
899 | 41 | Eyþór Reynisson |
670 | 42 | Bjarki Sigurðsson |
365 | 43 | Jón Bjarni Einarsson |
99 | 44 | Guðmundur Kort Nikulásson |
780 | 45 | Bryndís Einarsdóttir |
274 | 46 | Kjartan Gunnarsson |
Open | ||
4 | 41 | Einar Sigurdarson |
270 | 42 | Valdimar Þórðarson |
434 | 43 | Brynjar Gunnarsson |
900 | 44 | Heiðar Grétarsson |
210 | 45 | Freyr Torfason |
0 | 50 | Ragnar Ingi Stefánsson |