Bryndís Einarsdóttir var valin Íþróttamaður ársins af stjórn AÍH. Bryndís hefur verið félaginu til sóma jafnt innan vallar sem utan og varð meðal annars Íslandsmeistari í 85cc kvennaflokki á árinu. Hún hefur lagt mikið á sig og sýnt ótrúlegar framfarir á árinu. Bryndís ætlar sér að halda áfram á sömu braut og heldur utan í febrúar til æfinga hjá Harry Everts á Spáni. Hún tók einnig á móti viðurkenningu frá Hafnafjarðarbæ í gær út hendi Bæjarstjórans og var þessi mynd tekin við það tækifæri.
Af vef AÍH