Martin Dygd verður með motocross æfingabúðir í Svíþjóð um páskana fyrir íslenska ökumenn. Þetta verður mjög stíft prógram, mikið ekið, og mikið kennt. Krafa er gerð um að ökumenn séu í góðu líkamlegu formi og ekki byrjendur á hjólum – og þátttakendur þurfa að vera tilbúnir að leggja mjög mikið á sig. Kennt verður í 2 vikur, æfingar fara fram í 3 brautum í Svíþjóð og 1 braut í Noregi.
Auk þess verður eins dags kennsla í innanhús supercross braut í Svíþjóð og einn dag taka þátttakendur þátt í MX keppni í Svíþjóð. Þátttakendur þurfa að koma með hjól, hjólagír og æfingaföt með sér. Ódýra gistingu, rétt hjá Uddevalla brautinni, með gufu, potti, veitingastað og bar er að finna hér: www.hafsten.se. Hægt er að fljúga með Icelandair eða Iceland Express til Köben (eða Gautaborgar) og keyra þaðan til Uddevalla. Hægt er að senda hjól með Eimskip eða Samskip til Köben. Verð fyrir námskeiðið í 2 vikur er SEK 5.000 (ca. 50þ). Á námskeiðinu er pláss fyrir 20 ökumenn, en 8 ökumenn hafa nú þegar skráð sig og því pláss fyrir 12 í viðbót. Hjólaáætlunin er í viðhengi. Upplýsingar um námskeiðið veitir Martin Dygd, MARTINDYGD@dof.se. Skráning hjá Óla Rúnari, olirunar@webspeed.dk.
MX Boot camp
IN SWEDEN OVER THE EASTER
Program:
Monday 10/3 MX training in Stromstad
Tusday 11/3 MX training in Stromstad
Wensday 12/3 Restday
Thursday 13/3 MX training in Norway
Friday 14/3 MX training in Norway
Saturday 15/3 MX training in Uddevalla
Sunday 16/3 Restday
Monday 17/3 MX training in Uddevalla
Tusday 18/3 MX training in Uddevalla
Wensday 19/3 Indoor supercross training
Thursday 20/3 Restday
Friday 21/3 Race in Sotenas
Saturday 22/3 MX training in Sotenas