Það verður spennandi að sjá hver þróunin á torfæruhjólum verður, þegar olíuverð hefur margafaldast. Ætli mótorsportið verði alltaf háð brunahreyflum? Það eru nú þegar nokkrir litlir-frammleiðendur byrjaðir að framleiða rafmagns MX og Enduro hjól. Einnig eru til hjól, sem eru mitt á milli reiðhjóla og torfæruhjóla. Vissulega leysa rafmagnshjól hávaðavandann; MX brautir gætu verið innanbæjar og truflun Enduróhjóla gagnvart öðrum útivistarhópum væri hverfandi. Enduró-fólk væri þá jafnvel með vetniskúta, sem auka orkugjafa, og einu hljóðin sem ökumaðurin myndi heyra væri demparaglamur og bremsuískur. Engar skítugar loftsíur eða olíuskipti bara stinga í samband. Draumur sumra en matröð annarra, bein aflkúrfa og jafnt tog.
Hér eru nokkur flott video með Svissnesku Quantya hjólunumt;