Fólk er hvatt til þess að aka alls ekki á svæðum þar sem enn er bleyta.
Snjórinn bráðnar nú hröðum skrefum en það þýðir auðvitað að allt í námunda við hann getur verið á floti í vatni. Miklar skemmdir verða á vegum og slóðum ef ekið er á þeim rennandi blautum. Þá má benda fólki á það að fátt fer eins illa með legur og aðra slitfleti hjóla, eins og að aka í drullu.
Höldum aftur af okkur á meðan þetta ástand varir og ökum frekar á þeim brautum sem eru opnar.
Álfsnesið er t.d. í óvenju góðu standi um þessar mundir.