Þriðja og fjórða umferð íslandsmótsins í Enduro fara fram á Akureyri n.k. sunnudag.
Skipuleggjendur eru KKA akstursíþróttafélag, MSÍ og styrktaraðilar eru Dedion og JHM Sport.
Sunnudagin 15. júní n.k. mun fara fram annað þolakstursmót sumarsins á torfæruvélhjólum. Keppnin fer þannig fram að keppendum í meistaraflokki og tvímenningi er startað saman og Baldursdeild (byrjendaflokkur) sér. Keppendur í meistaraflokki aka brautina í 3 klukkutíma en ökumenn í tvímenningskeppni geta skipst á að aka. Keppendur í Baldursdeild aka í 2 klukkutíma. Sá sigrar sem flesta hringi ekur á þessum tíma. Brautin er lögð á akstursíþróttasvæði BA og KKA fyrir ofan Akureyri. Keppnissvæðið er mjög áhorfendavænt og hægt er að hafa yfirsýn yfir mestan hluta svæðisins.
Fyrsta mót sumarsins, haldið í Bolaöldu, var gríðalega spennandi og stóðu Valdimar Þórðarsson og Einar Sigurðarson uppi með jafnir að stigum.
Reiknað er með miklum fjölda keppenda, en á síðasta móti voru þeir 150.
Keppnin hefst kl. 10:10 og lýkur um kl. 16:00.
KKA akstursíþróttafélag, mótanefnd.