Skráning er hafin í Kawasaki bikarkeppnina sem haldin verður í Bolöldu 19. júlí næstkomandi. Keppnin er fyrir öll Kawasaki krosshjól og er leyfilegt að fá lánað hjól hjá vinum eða vandamönnum. Allir keppendur fá sérstaka MX-galla, merkta með nafni og keppnisnúmeri. ATH! Síðasti skráningardagur er 5. júlí og verður fólk einnig að vera meðlimir í klúbbi.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
85cc strákar
85cc stelpur
Opinn flokkur kvenna
125cc 2t – 250F
250cc 2t – 450F
Keppnisgjald er 25.000 í 85cc flokkunum og 32.000 í öðrum flokkum. Innifalið í keppnisgjaldi er eftirfarandi:
- Dekk undir hjólið
- Buxur
- Treyja merkt með nafni og keppnisnúmeri
- Gleraugu
- Bolur
- Maxima olía á hjólið
- Maxima spray o.fl.
- Orkudrykkur
- Létt grillveisla eftir keppni
Til að skrá þig í keppnina og borga keppnisgjaldið með VISA smelltu þá hér fyrir stóru flokkana og hér fyrir 85cc flokkinn. Ef þú vilt greiða keppnisgjaldið á einhvern annan hátt hafðu þá samband við Teddu á e-mailið tedda@nitro.is Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. eða í síma 440-1224
ATH! Keppnisgjald verður að greiða um leið fólk skráir sig.