Á laugardaginn var fór fram í fyrsta sinn á Íslandi Kawasaki bikarmót í motocross og voru um 35 keppendur mættir til leiks á akstursvæði VÍK í Bolaöldu. Keppnin heppnaðist frábærlega, brautin var æðisleg, keppendur hressir og ekki skemmdi frábært veður fyrir.
Í stóra flokknum var svaka reis á milli þeirra Ásgeirs #277, Arnars Inga #616 og Helga #213 öll mótóin, Árni lögga #100 var svo rétt á hælum þeirra allan tímann.
Nítró vill þakka öllum sem tóku þátt í keppninni sem og áhorfendum fyrir frábæran dag.
Úrslit:
MX2
1. Ásgeir Elíasson #277
2. Arnar Ingi Guðbjartsson #616
3. Helgi Már Hrafnkelsson #213
MX1
1. Daði Erlingsson
2. Guðmundur Óli Gunnarsson
3. Arnór Hauksson
MX-stelpur
1. Signý Stefánsdóttir
2. Aníta Hauksdóttir
3. Hekla Daðadóttir
MX-85 stelpur
1. Guðfinna Pétursdóttir
2. Ásdís Kjartansdóttir
MX-85 strákar
1. Gylfi Þór Héðinsson
2. Skúli Freyr Ólafsson
Nýliðaverðlaun fengu Jón Ernst Ágústsson, Bjarki Freyr Rúnarsson og Hlynur Sandholt.
Sérstaka 40+ viðurkenningu fékk svo Hrafnkell formaður Sigtryggsson.
Einnig vill Nítró sérstaklega þakka ungu strákunum á 65cc hjólum en þeir fengu að spreyta sig í stóru brautinni á laugardaginn, þeir eru svo sannarlega flottir á því.
Hægt er að sjá myndir hér.
{mosimage}