Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands hefur lengi boðið upp á 20 kennslust. helgarnámskeið í þjálfaramenntun, auk fjarnáms í sömu fræðum.
Fræðslusvið ÍSÍ hefur nú breytt fyrirkomulagi 20 kennslustunda námskeiðanna, sett þau í nýtt og aðgengilegra form. Frá og með febrúar 2009 verða í boði stutt 5 kennslustunda námskeið kl. 17.00-21.00 virka daga.
Námskeið þessi gilda áfram fyrir alla sem vilja sækja sér menntun sem íþróttaþjálfarar og einnig fyrir hverja þá aðra sem vilja fræðast um það efni sem í boði er hverju sinni, s.s. íþróttaiðkendur, stjórnendur, fólk í nefndum og ráðum eða hvern þann aðila sem áhuga hefur á efninu. Námskeið henta einnig afar vel sem endurmenntun fyrir íþróttaþjálfara.
Dæmi um efni sem fjallað verður um:
Íþróttasálfræði * Íþróttameiðsl * Næringarfræði íþrótta * Kennslufræði íþrótta * Siðfræði íþrótta * Forvarnir * Lyfjanotkun * Starfsemi líkamans *
Fyrstu fræðslunámskeiðin með þessu nýja fyrirkomulagi verða í boði í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í Reykjavík 12. feb. nk. og í aðstöðu ÍSÍ að Glerárgötu 26 á Akureyri 19. feb. nk. Efni þessara námskeiða verður íþróttasálfræði!
Skráning er á namskeid@isi.is til 10. feb. fyrir námskeiðið í Rvk og til 17. feb. fyrir námskeiðið á Akureyri. Áríðandi að taka fram á hvort námskeiðið verið er að skrá! Fram þarf að koma fullt nafn og kennitala.
Allar frekari uppl. gefur sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is