
Kawasaki KXF 250 og KXF 450, árgerð 2009 eru komin til landsins og verða frumsýnd föstudaginn 17. apríl í Nítró, umboðsaðila Kawasaki á Íslandi. Báðum hjólum hefur verið breytt umtalsvert. Aðdáendur Kawasaki hafi beðið eftir þessum hjólum um hríð og verða þau loksins sýnd í verslun Nítró við Bíldshöfða 17. apríl og á sama tíma á N1 Akureyri.
Kawasaki KXF 250 hefur verið endurbætt og er 2009 árgerðin einstaklega spennandi. Þar má helst nefna nýtt og endurhannað stell sem er bæði léttara og mjórra sem gerir ásetu á hjólinu mun þægilegri fyrir ökumann. Þá hefur 249cc hásnúningsmótorinn einnig verið bættur en búið að er breyta hallanum á honum ásamt því að hann er nú mun snarpari á lágum og háum snúningi. Hjólið hefur fengið Showa títanium-húðaða framdempara, lengri afturgaffal og nýrri afturfjöðrun sem gerir afturdemparann slaglengri.
Kawasaki KXF 450 er einnig orðið enn öflugra. Þar má helst nefna nýtt og endurhannað stell eins og á KXF 250 ásamt beinni innspýtingu, lengri afturgaffal og nýrri afturfjöðrun sem er slaglengri en í eldri gerðum. Mótorinn er mikið endurhannaður og gefur meðal annars mjög góða svörun og ótrúlega snerpu á lágum og háum snúningi. Framdemparar hjólsins eru 48mm „upside down“ með demantshúðun.
Það er mótorhjólaverslunin Nítró sem er umboðsaðili fyrir Kawasaki.