Búið er að opna brautina í Bolaöldu og er búið að yfirfara hana og reynt hefur verið að vökva hana eins og kerfið býður upp á. Miðjarðarhafsstemming er á svæðinu núna og sprangar fólk um á stuttermabolnum. VÍK mælist til að fólk fari frekar í Bolaöldu en Álfsnes þar sem Álfsnes hefur ofþornað og er ekkert annað en ryk í boði þar með tilheyrandi vandræðum fyrir loftsíuna. Það er spáð rigningu um helgina og gæti Álfsnes orðið góð eftir helgi.
2 hugrenningar um “Bolaalda opin – nýlöguð og vökvuð eins og hægt er”
Skildu eftir svar
Þú verður að skrá þig inn til þess að rita athugasemd.
Vill benda fólki á að Akrabraut er líka í fínu standi ennþá.. 19/5. Héldum vinnukvöld í kvöld og grjóthreynsuðum allsvaðalega. Skemmtileg braut og stutt að fara.
ég var í bolöldu í dag mér finst vanta palla í hana þetta er eins og að keyra á túni