Því miður að þá náði Signý Stefánsdóttir ekki að fylgja eftir góðum akstri í gær í seinna moto-inu í FIM WMX GP mótaröðinni sem fór fram í Portúgal um helgina. En þetta leit ágætlega út hjá henni í byrjun og var hún í 19 sæti þegar hún dettur. Þar með var það ekki búið, þar sem hún laut aftur í gras 5 mínútum seinna og endaði því í 33 sæti. Heildarútkoman ekki alveg á hreinu, en Signý búin að klára heilt FIM WMX GP mót og það er vel. Hægt er að sjá keppnina á www.freecaster.tv eins og svo oft hefur komið fram, en þetta er einnig sýnt á Motors TV.
Ein hugrenning um “Ekki jafngóður dagur í dag hjá Signý eins og í gær”
Skildu eftir svar
Þú verður að skrá þig inn til þess að rita athugasemd.
Hún endaði 35. af 37 overall eftir daginn