Nú líður senn að fyrstu keppni sumarsins á vegum MSÍ og margur vill gleyma því, að til þess að geta skráð sig í keppni eða tekið þátt í mótum, þá þarf sá hinn sami að vera virkur félagi í einu af aðildarfélögum MSÍ. M.ö.o. til þess að geta keppt þá verður þú vera búin/n að greiða félagsgjöld fyrir árið 2009 í félag eins og t.d. VÍK. Gjöld þessara félaga eru ekki há og rekstur þeirra er í járnum, ef ekki í tapi. Mikið er unnið í sjálfboðavinnu og oft af hugsjón einni saman til þess að halda úti aðstöðu svo þú getir hjólað. Þannig að þetta er ekki rétti vettvangur til að fara í greiðsluverkfall. Í skoðun á þeim ökutækjum sem munu taka þátt í enduromótinu á laugardag, þurfa keppendur að standa á hreinu með að þeir hafi greitt sín félagsgjöld í sína klúbba. Þannig að við mælum með að keppendur verði tilbúnir með kvittun, félagsskírteini eða staðfestingu frá klúbbnum um að félagsaðild fyrir árið 2009 sé tryggð og borguð.
Ein hugrenning um “Ætlar þú að keppa – Ertu virkur félagi?”
Skildu eftir svar
Þú verður að skrá þig inn til þess að rita athugasemd.
Allar upplýsingar til þess að endurnýja félagsgjöld eða skrá sig í AÍH er að finna hér ->
http://aihsport.is/index.php/gerast-medlimur-i-deildinni
Munið að senda síðan póst til að tilkynna 🙂
kv,
KGM