Það ætlar aldeilis að rætast úr veðurspánni fyrir okkur. Sjá veðurspá HÉR
Skráningin gengur frábærlega, eina sem vantar uppá eru fleiri skráningar í kvennaflokkinn.
Tímatökusendarnir verða EKKI notaðir.
Núna kl 21:12 eru búnir að skrá sig 35 manns og var það markmið okkar að ná amk 30 manns til keppni og það hefur tekist.
Þar sem við í stjórninni erum í svaklalega góðu skapi þá ætlum við að bjóða slugsunum upp á það að mæta í fyrramálið og skrá sig á staðnum. EN ÞAÐ VERÐUR BARA HÆGT Á MILLI KL 10:00 og 10:30. OG ÞÁ GEGN 3000 KR GREIÐSLU MEÐ PENINGUM.
Dagskráin færist um 1/2 tíma fram, við verðum með upphitun fyrir alla frá kl 11:00 – 11:2o.
Það verður raðað á starlínu eftir því hver verður besti vinur línumanns, hver sem það verður. ( Kannski )
Vinningshafi verður væntanlega sá sem stekkur fyrstur yfir lokalínuna. (Eða þá vinur línumannsins.)
Það er sett sem skilyrði að góða skapið verði tekið með í þessa keppni þar sem aðalatriðið er að hafa gaman af þessu.
11:00 85 cc kk + kvk + kvenna. 10 mín +1 hr
11:25 Unglingaflokkur + B flokkur 15 mín + 2 hr.
11:55 MX2 + MXopen 20 mín + 2 hr.
12:30 85 cc kk + kvk + kvenna. 10 mín +1 hr. Moto 2
12:55 Unglingaflokkur + B flokkur 15 mín + 2 hr. Moto 2
13:25 MX2 + MXopen 20 mín + 2 hringir. Moto 2
14:00 Drullupollakeppni fyrir þá sem þora!!! Hver verður með flottustu skvettuna? Hver verður með flottustu fleytinguna.
Stjórnin
Er leyndarmál hvað margir eru skráðir? Á maður að nenna að horfa á þetta?