Komiði sæl og takk kærlega fyrir skemmtilegt sumar.
Nú er loks komið á hreint að VÍK mun standa fyrir þrekæfingum fyrir krakkana sem voru á æfingunum í sumar. Inniæfingar munu hefjast þann 1. október í íþróttasal Selásskóla. Æfingarnar munu verða á mánudögum og fimmtudögum kl. 17-18
Verð fyrir þessar æfingar er 15.000 kr. fyrir tímabilið október-desember og 18.000 frá janúar og út apríl.
Námskeiðið er ætlað krökkum sem stunda eða hafa áhuga á motocrossi. Þetta er gert til þess að krakkar sem eru að hjóla fá að kynnast, hittast og leika sér saman í íþróttasal. Á námskeiðunum verður farið í leiki, gerðar þrekæfingar ásamt því að horft verður á kennslumyndbönd um motocross.
Kennarar á þessum námskeiðum verða þeir sömu og voru með námskeiðin í sumar, þeir Gulli og Helgi Már.
Smellið á lesa meira til að skrá ykkur
[contact-form 3 „Skráning í inniaefingar“]
Verð fyrir þessar æfingar er 15.000 kr. fyrir tímabilið október-desember og 18.000 frá janúar og út apríl.
Vinsamlega millifærið upphæðina á reikning VÍK (að frádregnu Frístundakorti ef þið hafið það) og merkjið kennitölu iðkanda sem tilvísun. Best væri að senda kvittun fyrir millifærslu á vefstjori@motocross.is KT: 480592-2639 Banki: 537-26-501101
Skráðir eru:
Gunnar Ómarsson
Sindri Már Ingimarsson
Victor Hjörvarsson
Elísabet Íris Jónsdóttir
Högni Steinn Jóhannesson
Patrekur Páll Auðunsson (Greitt)
Kristofer Liszt Auðunsson (Greitt)