
Vor í Bolaöldum í dag!!! það var amk sami fýlingurinn í mannskapnum í dag eins og þetta væri að vori. Veðrið er búið að vera eins og á frábærum vordegi. Brautirnar allar í topp standi og enduró kapparnir gátu tætt og tryllt um allt.
Ekki nóg með það að brautirnar væru góðar, heldur tók Keli, formó, sig til og rippaði alla stóru brautina til að hún væri 110%. OfurHaukur, Sveppagreifinn, Nikki frá Álftanesi og fleiri góðir, tóku sig til og lagfærðu rithmapallana eftir stóra pallinn. Eins og áður var sagt, þetta var bara eins og á góðum vordegi.
Á svæðið voru mættir krakkahjólarar, stelpuhjólarar, utanbæjarhjólarar, kallahjólarar, keppnishjólarar, sporthjólarar og líka ég. Og það höfðu allir jafn gaman af þessu.
Það var smellt nokkrum myndum á mína imbavél og gæðin eru að sjálfsögðu eftir því. En vonandi horfið þið framhjá þeim ágöllum sem eru á myndunum.









Brautin var algjör sulta
Takk fyrir mig
kv
Benni #115