Monster Energy Kawasaki hefur nefnt Nick Wey sem tímabundinn ökumann í stað Chad Reed, hann er frá vegna meiðsla á hendi. Nick Way varð fyrsta val hjá Mike Fisher liðstjóra liðsins enda er Way búin að standa sig mjög vel sem „privateer“ í fyrstu þrem keppnunum.
„Nick er mjög góður fyrir liðið og á eftir að standa sig vel“sagði Monster Energy Kawasaki liðstjórinn Mike Fisher. „Hann hefur verið að hjóla með Ryan á vikunni og hann er þegar kunnuglegur hjólinu. Nick er góður ökumaður.
„Þetta er frábært tækifæri fyrir mig,“ sagði Wey. „Ég vil þakka öllum í hópnum mínum fyrir að gefa mér tækifæri í Monster Energy Kawasaki liðinu. Ég er búin að hjóla mikið á factory hjólinu í vikunni og ég mun verða tilbúin í San Francisco.“
Fjórða umferð í AMA Supercrossinu er í San Francisco um helgina.