Aðalfundur VÍK var haldinn í gærkvöldi og voru aðalfundarstörf haldin í takt við gamla siði og reglur. Hrafnkell Sigtryggsson var endurkjörinn formaður og reikningar kynntir. Hann kynnti framtíðarsýn stjórnarinnar og bar hana undir félagsmenn. Tillagan gekk útá mikilvægi þess að félagið eignist betri æfingaraðstöðu, þar með talda innanhússaðstöðu aukþessara liða:
- Ökukennarasvæði norðan við svæðið
- Hjólahöll
- 3 motocrossbrautir til viðbótar –Ný 85cc braut, byrjendabraut fullorðinna, ný æfingabraut
- Flóðlýsing á aðalbraut
- Trial/þrautabraut
- Freestylesvæði
- Uppgræðsluáætlun
- Geymsluaðstaða fyrir hjól
- Nýtt og stærra þvottaplan
- Bundið slitlag inn á svæðið
Bar Hrafnkell upp þá tillögu að hefja undirbúning byggingu hjólahallar auk hinna atriðanna. Tillagan var samþykkt einróma og stefnt er að að hjólabyggingin verði tilbúin árið 2015 en önnur atriði fyrr.
Aðalfundur Vélhjólaíþróttaklúbbsins – skýrsla stjórnar vegna 2009
Aðalfundur VÍK 16.3.2010- Fundargerð
Áfram VíK
sko þarna erum við að tala um góða framtíð fyrir motocrossið halda þessu áfram
Hvað erum við að tala um að þetta kosti? Hvað kostar að hjóla í þessari höll?
heyrðu var að pæla eru þið ekki alvitir um motocross er hægt að keppa á kx100 í 85-u flokki ?
Stufur! það er enginn verðmiði komin á neitt ennþá þar sem þetta er á algjöru frumstigi.
Konni10! Varðandi að keppa á KX100 í 85 floknnum er hlutur sem ég er ekki klár á. Ráðlegg þér að hafa samband við MSÍ, eða droppa bara upp í KTM umboðið og spjalla við formanninn hann Kalla. Hann veit pottþétt hvort þessi hjól eru eða verða leyfileg í 85cc flokknum.
Thad er bannad ad vera a staerra en 85cc tvigengis og bannad ad vera a staerra en 150cc fjorgengis i 85 flokk