Lokaumferð Íslandsmótsins í Íscrossi fer fram á Mývatni á laugardaginn. Skráning er opin á msisport.is fram á miðnætti á miðvikudagskvöld. Mótið er keyrt samhliða vélsleðamóti sem verður á föstudeginum og laugardeginum og endar þetta allt með dansleik um kvöldið.
Dagskrá
Föstudagur 19. mars
Kl. 14:00 Samhliða brautarkeppni (skráning á staðnum kl 13:00-13:30)
Kl. 16:30 Hillcross (skráning á staðnum kl 15:30-16:00)
Kl. 18:00 Jarðböðin (láta líða úr sér eftir átök dagsins)
Kl. 20:30 Ísspyrna í flóðljósum úti á Mývatni
Kl. 21:30 Setning Mývatn 2010 úti á Mývatni
Kl. 21:40 Keppendur kynntir
Kl. 22:00 Flugeldasýning
Laugardagur 20. mars
Kl. 8:00 Íscross – skoðun hjóla (skráning eingöngu á www.msisport.is)
Kl. 9:00 Íscross – Tímatökur
Kl. 10:00 Íscross 1. móto
Kl. 11:00 Íscross 2. móto
Kl. 12:00 Íscross 3. móto
Kl. 14:00 Snocross – Tímatökur (skráning eingöngu á www.msisport.is)
Kl. 15:00 Snocross keppni hefst
Kl. 18:00 Jarðböðin (láta líða úr sér eftir átök dagsins og fyrir átök kvöldsins)
Kl. 20:00 Vídeosýning af afrekum dagsins hefst í Skjólbrekku
Kl. 21:00 Veisla kvöldsins hefst í Skjólbrekku
Kl. 21:30 Verðlaunaafhending fyrir afrek helgarinnar
Kl. 23:00 Dansleikur með hljómsveitinni Von
Mikilvægar upplýsingar
– Enn er laus gisting á Sel-Hótel, Gistiheimilinu Skútustöðum, Hótel Reynihlíð, ofl.
– Snocrossbrautin verður við Kröflu.
– Samhliðabraut og Hillcross verður í Kröflu
– Miði á lokahófið í Skjólbrekku kr 6900 (innifalið hlaðborð, skemmtun og dansleikur)
– Hvanndalsbræður koma á óvart yfir borðhaldi.
– Verðlaunaafhending fyrir allar greinar fer fram í Skjólbrekku
– Skráning í Íscross og Snocross er opin á www.msisport.is fram til miðnættis 17/3
– Allar nánari upplýsingar á www.myvatn.is
Vegna skipulagsbreytinga verður lokahófið fært inn í Sel – Hótel Mývatn en ekki í Skjólbrekku. Sama prógram verður keyrt og hefst videosýning kl. 19:30 og svo matur rúmlega átta.
Hvanndalsbræður koma og verða með gott innslag. Einnig verður verðlaunaafhendingin á sínum stað.
Smærri útgáfa af Von með Magna sér við hlið mun svo koma og halda uppi stuðinu fram eftir nóttu.
Húsið verður svo opnað fyrir almenning eftir kl. 24:00 og verður þá 18 ára aldurstakmark og kr.1500.- inn í húsið
Kveðja úr Mývatnssveit
Yngvi R. Kristjánsson