Það er ekki að sjá hjá Nitró að það sé kreppa. Enda hvað er það! Það var blásið til risasýningar á 2010 árgerðum á Kawasaki í gærkvöldi, einnig var boðið upp á góða afslætti á ýmsum vörum. Múgur og margmenni sótti sýninguna og voru allir gestir mjög ánægðir með það sem fyrir augun bar.
Samkvæmt Ragga þá er góður gangur í sölu á 2010 árgerðunum og ekki væri kreppan að leggja hjólasportið.
Vefurinn náði að slíta Ragga í augnablik frá æstum kaupendum og fékk hann til að stilla sér upp með 2010 drullumöllurunum fyrir myndatöku.
Þegar fólk var búið að versla og skoða nægju sína var boðið upp á kaffi og kræsingar eins og hver gat í sig látið.