Álfsnes verður lokuð á morgun vegna viðhalds þar sem meðal annars pallar verða lagaðir o.fl. Það verður jarðýta sem vinnur verkið undir leiðsögn Reynis. Á sunnudag verður svo vinnudagur í Álfsnesi frá kl.10 – 13 og fá þeir sem mæta til vinnu, á réttum tíma, smá forskot á sæluna og keyra einir í brautinni frá kl 13 – 15. Brautin verðu svo opnuð almenningi frá kl 15 á sunnudaginn. Er þetta í raun fyrsta lagfæringin á brautinni síðan fyrir síðasta mót í Íslandsmeistaramótinu sem haldið var í júlí í fyrra. Þannig að hún ætti að verða eins og best verður á kosið á sunnudaginn. Minnum á miða í brautina sem fást á N1 í Mosfellsbæ.