Nýju rafmagnsmotocrosshjólin frá KTM sem slógu í gegn á Alþjóðlegu mótorhjólasýningunni í Japan um síðustu helgi eru komin til landsins. Kalli Katoom hefur nokkuð góð sambönd í Austurríki og fékk hjólin lánuð í tvo daga nú þegar þau eru á leiðinni heim eftir sýninguna. Hjólin koma í verslunina Moto í Rofabæ 7 um klukkan 11 í dag og ekki ólíklegt að KG sjálfur myndi læðast í smá sprett á supermoto-hjólinu í hádeginu eins og hann orðaði það. Verslunin verður opin allan daginn í tilefni þessa og boðið verður uppá kaffi og meðlæti.
Ein hugrenning um “Rafmagns-KTM-ið komið til Íslands – Sýning í dag”
Skildu eftir svar
Þú verður að skrá þig inn til þess að rita athugasemd.
Kalli, er búin að vera örtröð í dag? 😉