Eins og áður, verða keppendur hnepptir í ‘Víti‘ fari þeir ekki eftir settum reglum.
Brautargæslumenn verða um alla braut og fylgjast með framgangi mála. Þeir tilkynna brot og aðra hluti til keppnistjórnar í gegnum talstöðvar. Keppnisstjórn hneppir svo óþekka keppendur í „Vítis-varðhald“ eins og tilefni er til.
Meðal þess sem brautargæslumönnum ber að tilkynna er:
– Keppandi sleppir hliði eða fer röngu megin við stiku.
– Keppandi tekur niður stiku með hjóli eða fæti án augljósar ástæðu (t.d. forðast árekstur)
– Keppandi virðir ekki hraðatakmarkanir á skipti- eða þjónustusvæði.
– Keppandi er með rangt númer á treyju eða með illa merkt hjól.
– Keppandi sýnir af sér óíþróttamannslega hegðun.
Hvert brot kostar eina mínútu í „Víti“. Best að haga sér bara vel…! 😉