Mjög góð þátttaka er í fyrstu umferð Íslandsmótsins í motocrossi sem fer fram á laugardaginn við Ólafsfjörð. Tæplega 100 keppendur eru skráðir til leiks. Sérstaklega er ánægjulegt er að sjá góða þáttöku í MX Kvennaflokki og einnig er töluverð nýliðun og góð þáttaka í 85cc flokki.
Skráning í liðakeppni fer fram samkvæmt reglum um „keppnisreglur um liðakeppni“ sem er að finna á hér.
Dagskrá og uppfærðar keppnisreglur birtast á msisport.is í dag.
Hér er keppendalistinn í heild.
Uppfærðar reglur með þeim breytingum sem kynntar voru í vetur eru komnar
inn á http://www.msisport.is undir „REGLUR“
Sjá linka „Keppnisreglur MSÍ Moto-Cross“ og einnig dagskrá fyrir árið 2010
sjá „Moto-Cross dagskrá 2010“
kv.
Kalli