Vegna kæru frá landeigendum í Borgarfirði verður motocrossið á Unglingalandsmóti UMFÍ fært frá nýrri braut í Borgarnesi til Akraness.
Þrátt fyrir stuttan fyrirvara hafa menn og konur á Akranesi brett upp ermar og gert Akrabrautina klára fyrir keppnina á mettíma. Rúmlega 30 ungmenni eru skráð til leiks og án nokkurs vafa verður mikið stuð á Skaganum á sunnudaginn.
Keppnin hefst á sunnudaginn klukkan 12 og hvetjum við alla til að koma við í Akrabraut og sjá okkar björtustu vonir keppa á landsmótinu.
Hér fyrir neðan má sjá dagskrána í heild:
Keppnisfyrirkomulag:
Kl. 11.00 – 12.00 Skoðun keppnishjóla – úthlutun tímatökusenda
Kl. 12.00 – 12.15 85cc flokkur – tímataka og upphitun
kl. 12.20 – 12.35 Unglingaflokkur – tímataka og upphitun
Kl. 12.45 – 13.00 85cc flokkur – Moto 1
Kl. 13.10 – 13.30 Unglingaflokkur – Moto 1
Kl. 13.40 – 13.55 85cc flokkur – Moto 2
kl. 14.05 – 14.25 Unglingaflokkur – Moto 2
kl. 14.40 – 15.00 Verðlaunaafhending
ótrúlegt að eitthverjir hvað sumir þurfa alltaf að eyðileggja fyrir öllum. Hvar eiga þeir heima?
og ótrúlegt hvað ég get ekki orðað hluti þegar ég skrifa í pirringi..
ATH VÍFA brautin er að sjálfsögðu lokuð fram yfir keppni.