Uppfærsla:
Þeir sem ekki eiga tímatökusenda!!!! Nítró – MSÍ lána okkur senda í þetta mót.
Verðum með þá á staðnum, Engin vandamál. Engin greiðsla.
Skráning fram að miðnætti Föstudagskvöld.
Veitt verða sér verðlaun fyrir FLOTTASTA búninginn, að mati keppnisstjórnar.
Heiðurmenn eiga séns á að skrá sig á staðnum.
______________________________________________________________________________
Þá er búið að opna fyrir skráningu í bikarmótið sem fer fram á laugardaginn á Álfsnesi. Keppt verður í 4 flokkum og verður aðalatriðið að hafa gaman af deginum og sýna strákunum í landsliðinu að við stöndum á bakvið þá.
Hér eru flokkarnir sem keppt verður í
- Mx Open: MxOpen + Unglingaflokkur ( þeir sem treysta sér ) + bestu úr B og MX 2.
- Mx85 + kvenna: Mx kvenna + 85kvk + 85 KK
- Mx B: Bestu úr 85cc KK, Unglingaflokkur, +40 )
- H(eiðursmenn)a: í þennan flokk má ekki skrá sig ef viðkomandi hefur keppt á Íslandsmóti sl tvö ár.
Keppnin fer fram á laugardaginn milli klukkan 10 og 15. Hver flokkur keppir í 2 X 12 mín. Keppnisgjald er 4.000 á mann óháð stærð eða aldri.
Í lokin verða öllum keppendum boðið að vera með í „Tvímenningsmoto“. Keppnisstjórn velur tvo saman í lið, vanan og óvanan, og hjóla þeir í 45 mínútna keppni. Hver keppandi hjólar tvo hringi og svo er skipt.
hvenar lokar skráning
Skráning er fram að miðnætti Fimmtudagskvölds.
Það er kominn flottur hópur keppenda í alla flokka. Þetta verður gaman.
keppendalistinn takk 🙂
En hvernig er það, í hvaða flokk eiga óbreyttir b-flokks menn að skrá sig?
Ef menn treysta sér í MX Open, þá bara go for itt. Annars er það B flokkurinn.
Robbi, ég sé um keppendalistann. Ég þarf að handskrá listann og hef ekki haft tíma til þess.
Það gerist ekki fyrr en seinnipartinn á morgun. Þessi vinna er alltaf að trufla áhugamálið.
Hvernig er dagskráin á morgun ? Mæting skoðun o.s. frv ?
Dagskráin kemur á netið á eftir. Vefstjóri er að vinna það. En upphitun byrjar kl 10:00 Mæting upp úr kl 09:00 Farið yfir skráningu og skoðun. Ástand hjóla er á ábyrgð keppanda en hættuleg hjól verða stoppuð.